Klæðskerasniðnar lausnir

Enginn flutningur eins

Starfsfólk Frakt.is hefur mikla reynslu og þekkingu í verkefnaflutningum.. Má þar nefna búnað fyrir tónleika, kvikmynda og sjónvarpsþáttagerð auk ráðstefna og sýninga af ýmsum stærðum.
Umfang og skipulag slíkra flutninga er yfirleitt með öðrum hætti en gerist í almennum flutningum. Oftar en ekki er tíminn takmarkaður sem flutningaferlið má taka, og eðli málsins samkvæmt er algjört skilyrði að búnaðurinn sé til staðar þegar á að nota hann.

Frakt.is er i samstarfi við nokkur af helstu flutningafyrirtækjum heims sem hafa sérþekkingu á slíkum flutningum. Á undanförnum árum hefur starfsfólk Frakt.is sérhæft sig í verkefnaflutningum og komið að mörgum stórum verkefnum.

Við tryggjum:

  • 24/7 aðgang að okkar starfsfólki
  • Sérhæft starfsfólk sem þekkir sérþarfir tengdum slíkum flutningum
  • Erum til staðar á vettfangi þegar þarf

Hafðu samband í síma 520 1450 eða projects@frakt.is og fáðu flutningaráðgjöf fyrir þitt verkefni.

10.04.10
Frakt.is hefur tekið í notkun nýja glæsilega heimasíðu....
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá