Ráðgjöf - aðstoðum þig við réttu lausnina Ráðgjafar Frakt.is aðstoða fyrirtæki á hlutlausan og faglegan hátt um val á réttu fraktlausninni hverju sinni. Með auknu framboði á flutningstengdri þjónustu getur reynst erfitt að finna hagkvæmustu lausnina. Starfsfólk Frakt.is hefur mikla reynslu og þekkingu á flutningsmiðlun og tengdri þjónustu. Markmiðið er ávallt að leita hagkvæmustu lausna handa fyrir viðskiptavini. Starfsfólk Frakt.is leggur metnað sinn í persónulega og sveigjanlega þjónustu, og er alltaf reiðubúið þegar svo ber undir. Skiptir engu hvort fyrirtæki eru að hefja starfsemi eða hafa stundað viðskipti til lengri tíma. Frakt.is leggur sig fram um að veita fyrsta flokks ráðgjöf með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi. Starfsfólk Frakt.is er ávallt reiðubúið að veita óháða ráðgjöf og svara fyrirspurnum viðskiptavina. Hafið samband í síma 520 1450 eða service@frakt.is og vandamálið breytist í viðfangsefni. |












