Tryggingar Ábyrgð flutningsaðila er öllu jafna mjög lítil og takmörkukð. Þess vegna brýnum við fyrir okkar viðskiptavinum að tryggja sínar sendingar. Allar flug og sjósendingar sem fluttar eru inn með Frakt.is og greiddar aru af móttakanda (collect sendingar) eru sjálfkrafa tryggðar, samkvæmt skilmálum A (sjá skilmála), að verðmæti 1.000.000. Undanskildar eru búslóðir og ökutæki. Óski viðskiptavinur eftir að tryggja vörusendingu sem er að verðmæti yfir 1.000.000 er honum bent á að hafa samband við viðskiptaþjónustu í síma 520 1450 eða service@frakt.is Frakt.is getur boðið viðskiptavinum sínum hagstæð kjör á flutningstryggingum.í samvinnu við Sjóvá. Markmið okkar er að varan komist alltaf áfallalaust til móttakanda. Til þess að svo geti orðið þarf að fara saman góður frágangur og vönduð vörumeðferð Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 520 1450.. |












