Græn stefna - Minnkum pappír

Óendanlega mikið magn af pappír hefur lengi fylgt starfsemi flutningafyrirtækja. Oftar en ekki fer mestur hluti af þeim pappír í ruslið. Stefna Frakt.is er að stuðla að aukinni umhverfisvitund og minnka pappírsflóðið.

Frakt.is leggur áherslu á að minnka pappírsnotkun í rekstri fyrirtækisins.

Frakt.is sendir öll fylgiskjöl og reikninga með rafrænum hætti eða í PDF formi til viðskiptavina fyrirtækisins, í stað þess að prenta út og senda með almennum pósti eða afhenda á annan máta.

Að sama skapi sendir Frakt.is ekki greiðsluseðla heldur mun krafan birtast í heimabanka viðkomandi.

Þeir sem vilja fá fylgiskjöl, reikninga og eða greiðsluseðla á annan hátt eða hafa frekari spurningar, geta haft samband í síma 520 1450 eða senda tölvupóst á netfangið info@frakt.is

10.04.10
Frakt.is hefur tekið í notkun nýja glæsilega heimasíðu....
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá